415 5990 gjaldskil@gjaldskil.is Opið 9–15 (lokað í hádeginu)
Leyfi frá Fjármálaeftirlitinu
IS EN
Um okkur

Gjaldskil

Framsækið innheimtufélag sem hefur sinnt innheimtu fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir síðan 1986.

Gjaldskil er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður viðskiptavinum sínum upp á heildstæðar lausnir á sviði innheimtuþjónustu.

Starfsmenn Gjaldskila búa yfir mikilli fagþekkingu á breiðu sviði rekstrar og þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga. Hjá félaginu starfa fulltrúar, lögfræðingar og lögmenn með mikla reynslu í kröfurétti og innheimtu. Sumir þessara starfsmanna eru meðal reynslumestu aðila landsins í innheimtu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gjaldskil hefur tæknilega getu til að takast á við stór og flókin innheimtuverkefni enda hefur félagið verið leiðandi í rafrænum lausnum á sviði innheimtu.

Gjaldskil starfar með leyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og þarf sem slíkt að fara í reglulegar úttektir og eftirlit.

Orðspor

Innheimta er framlenging á starfsemi kröfuhafans

Gjaldskil hefur mjög gott orðspor á markaði og er þekkt fyrir getu félagsins til að sinna stórum viðskiptavinum sem gera miklar kröfur um gott orðspor innheimtuaðila.

Mikilvægt er að viðhalda góðu sambandi milli kröfuhafa og greiðenda. Margþættar ástæður geta legið að baki þess að greiðandi hefur ekki innt greiðslu af hendi fyrir eindaga. Við erum til taks fyrir bæði kröfuhafa og greiðendur, til að leita lausna fyrir báða aðila.

Það er góð tilfinning að standa í skilum og það er okkar hlutverk og ánægja að stuðla að því.

Eignarhald

Ábyrgir eigendur

50%

Viti fjárfestingarfélag ehf

Artica Finance

25%

Lárós ehf

Framkvæmdastjóri

25%

Gjaldskil ehf

LEX Lögmannstofa / Legalis Lögmannstofa

Að baki félaginu standa eigendur með gott orðspor og langa sögu í fjármála- og lögfræðistörfum. Ábyrgðin byrjar á toppnum.

Samstarfsaðilar á sviði löginnheimtu LEX Lögmannstofa · Legalis Lögmannstofa
Næsta skref

Hafðu samband

Við viljum gjarnan fara yfir innheimtuferli fyrirtækisins þíns og kynna lausnir sem henta.

Hafðu samband → 415 5990